SEGдEIKKAÐ!!


   


<< January 2012 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31



TÉKKIÐ Á !
ÁSTA BJÖRK
ÁSGERÐUR
ANITA OG SIGGI
ANNA MARÍA
ATLI GEIR
ELÍSABET
FINNUR FREYR
FOSTERINN
GUNNI
HJÖRDÍS JÓH
HREFNA
JÚLÍA ELSA
KAREN FRÆNKA
KELI
LAUGA
MATTA
RAGNA JENNÝ
SIGURBÁRA
SIGURLAUG
SOFFÍA
STEBBA BABE
STEINUNN HÖDD
THELMA & CO
ÞÓREY BIBBA

RÚSÍNUR !
ALEX
ARNAR GAUTI
BALDUR
BIRKIR
FRIÐRIK BENÓNÝ
GABRÍEL
JÓN ÆVAR
ÓLI BJARKI
SVALA BJÖRK

SNEDDÍ STUFF !

SÁ BESTI Í BÆNUM
EYJAFRÉTTIR
EYJAR.NET
MOGGINN
ARGO ÍRIS
STJÖRNUSPÁ
HVANNEYRI
ÍBV KK
ÍBVSPORT
ÍBV KVK

THJÓDARINN
DALURINN
HRAPPUR
FOLK.IS

MYNDIR

MYNDIR2

GESTABÓK

DAGATAL

FRAMUNDAN !

DESEMBER

24. Aðfangadagur
25. Jólaboðsdagur
26. Þór og fam kemur á eyjuna
27. S.S.sól í Höllinni
30. Rikka og fam kemur á eyjuna
31. Stóri dagurinn! jjjeeejjj

JANÚAR

01. ÞÞDD
02. Bökunarfrísdagur
05. Rvk-dagsferð
06. Þrettándinn eða hvað ?
09. Gerfi þrettándinn
10. VVogB í Höllinni


Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


blogdrive

Tuesday, December 23, 2008
Jólin eru handan við hornið...

Hmmm hvaða horn ??

Já á  morgun koma jólin... bara svona ef það hefði farið framhjá ehverjum !!  Big Smile   

Er alveg að missa mig...  jólaskapið alveg að fara með mig...  veit eiginlega ekki hvort er betra að vera í úber jólaskapi... eða ekki neinu...   En jólatréð er komið á sinn stað... og jólaljósið á.. en skreytingin hefst í kvöld kl. 23.00 að staðartíma...  vonandi láta kattargreyin bara tréð í friði...  Shocked

Keypti mér reyndar jólagjöf í gær... hef ALDREI gert það áður að kaupa jólagjöf handa sjálfri mér...  en þegar CD-spilarinn gaf upp öndina á laugardaginn þá varð eiginlega bara að gera ehvað í málunum... þannig moi keypti sér heimabíó í gær... og vei hvað var gaman að blasta smá Evanescense í gærkveldi... ooohhh ....  fegin að neðrihæðarbúinn er að vinna lengi svona korter fyrir jól Big Smile  En græjurnar mínar eru nú búnar að gera það gott...  hafa skemmt mér i tæp 20 ár...   ekki amarleg ending það hehe....

En aðal fjörið hjá köttunum var kassinn utan af heimabíóinu...  ég hafði límt hann aftur með límbandi  svo að þeir væru ekki að leika sér ofan í honum... en þá fundu þeir það út að það kom rosa skemmtilegt hljóð þegar stigið var ofan á kassann...   (límbandið að rifna af og límast við aftur)...  svaka sport....Angry þegar ég var búin að fara 5 sinnum fram í gærkveldi til að skamma þá... fattaði ég að snúa kassanum við ... hmmm  er stundum svoldið skörp... tekur bara tíma  Wink

En gleðileg jól allir ( 1) ... vonandi hafið þið það sem allra allra best yfir hátíðina... 

þangað til næst...  


Posted at 01:08 pm by petit
Comments (1)

Tuesday, December 16, 2008
Bráðum koma blessuð jólin..

Jæja nú er farið að styttast allverulega í jólin...  og ég er alveg að missa mig í jólaskapinu... hef ekki verið svona síðan.....ég man ekki ... bara held aldrei !  Vil helst geta sett jólaljós ALLSSTAÐAR !  og þoli ekki að það séu ekki innstungur um alla íbúð til að stinga þeim í samband...  hehe  ....... það væri þó aldrei að ég hafi fengið smá af jólaskapinu frá henni systur  minni...  en elsta systir mín hún Rikka er jólabarn allra jólabarna...  hún spilar jólalög allt árið.. ef hana langar að komast í gott skap.. voila jólalögin sett í tækið...  hún var búin að skreyta fullt þegar ég kom síðast i heimsókn í byrjun nóvember ...  s.s. jólin koma snemma á Sólbakka...  Smile

Kormákur og Hans eru alveg að fíla öll þessi jólaljós...  stend í baráttu við þá meðan ég er að hengja upp ljósin sem endar yfirleitt með því að þeir eru lokaðir inn á klósetti ...  greyin litlu... en þeir eru fljótir að fyrirgefa eigandanum ... enda gefur hann þeim að borða hehe ...  Big Smile 

Mamma bakaði handa mér þennan líka flotta aðventukrans sem að stendur á sófaborðinu...  sem er ekki orðin svo agalega flottur í dag... en yngsti meðlimur fjölskyldunnar misskilur tilgang hans og finnst hann agalega góður á bragðið...  er búið að narta ansi vel í hann...

en þó svo að það líði alltaf agalega langt á milli blogga þá blogga ég þó hehehe Tongue

þangað til næst

og gleðileg jól  ....  jólin jólin jólin koma brátt...  eða eins og Pétur Jóhann kemst svo vel að orði í jólaauglýsingu vodafone...  jóla jóla jóla jóla jóla jóla ...   Big Smile  snillingur Big Smile


Posted at 11:02 am by petit
Comments (3)

Saturday, August 23, 2008
Að kafna úr þjóðarstolti... !

Já ég og meirihluti íslendinga...  eftir stórkostlegan leik strákanna okkar í dag...  þetta er búið að vera frábært mót hjá þeim og aðeins úrslitaleikurinn eftir...  silfrið komið og gullið innann handar... !  

Var að horfa á leikinn aftur og held bara að ég hafi grátið enn meira í lokin enn í fyrra skiptið... þetta er ekkert smá sætt...    agalega stolt af strákunum... þeir eru snillinginar allir sem einn.... 

Svo er bara frábær íþróttahelgi framundan... úrslitaleikur norðmanna/kvenna og rússa í fyrramálið ... síðast leikur KFS um 2 leytið og svo Arsenal kl 16. 30...  svo hefst veislan rétt eftir miðnætti með leiknum um 7-8 sæti...  Danir vinir mínir á móti S-Kórea... strax á eftir leikurinn um 5-6 sæti...  Pólland - Rússland.... þar á eftileikurinn um 3-4 sæti Spánn - Króatía... og svo auðvitað toppurinn á sunnudagsmorgun...  ÍSLAND - frakkland....   geðveikt...  og svo er verið að reyna að draga mann út á lífið...  frá þessari handboltaveislu...  hmmmmmm....

þangað til næst

ÁFRAM ÍSLAND... 


Posted at 03:45 am by petit
Make a comment

Wednesday, August 20, 2008
Undanúrslit

Þvílíkur snilldarleikur hjá íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í morgun....  og komnir í undanúrslit... leika um sæti... var alveg að missa mig í restina í morgun komin upp á sófabak... kettirnir löngu farnir og horfðu á mig með stórum augum undan stólum....  skíthræddir við eigandann....  fékk tár í augun þegar sigurinn var í höfn .. og næstum því smá ekka þegar að ég talaði við mömmu hálfri sekúndu seinna..   agalega er maður ehvað stoltur af því að vera íslendingur í dag...  

En svo er það bara leikur í hádeginu á föstudag...  Spánn eða S-Kórea...  ætla að vona að það verði Spánn...  finnst við ehvernveginn hafa meiri mögulega gegn þeim...  og þá jafnvel að við förum í úrslitaleikinn.... núna eru 25% likur á því að við verðum Ólympíumeistarar í handbolta.... dís... kann vel við þær líkurnar... 

Ekki má gleyma að það eru 2 leikir eftir í dag...  Danmörk-Króatía núna rétt á eftir vonandi vinnur hitt liðið mitt DK.. fylgist með á netinu.. lítið unnið fyrir hádegi hehe ...  og svo auðvitað Spánn- S-Kórea í hádeginu... maður tekur nú pínku langan hádegismat og horfir alla vega á seinni hálfleikinn og hvetur áfram spánverja... 

En þangað til næst..  ÁFRAM ÍSLAND !!! 


Posted at 11:43 am by petit
Make a comment

Saturday, August 16, 2008
Þjóðó og sumó...

Jæja ... margt búið að ske síðan síðast þó svo að liðin sé nú ekkert svakalega langur tími... þjóðhátíðin búin og heppnaðist hún líka svona glimmrandi vel...  held hún batni bara með árunum...  núna er bara 50 helgar fram að næstu...  miklu styttra að telja helgarnar en dagana eins og Gísli segir hehe... þannig hér með tel ég í helgum... 

Búin að fara í smá sumó... ég og Þóra mágkona fórum og hittum gamla settið á húsbílnum og vorum með þeim í nokkra daga... hún þó aðeins styttra...  var farið á Flúðir, Selfoss, Reykjavík, Þingvelli og Þorlákshöfn...  agalega heppin með veður á flestum stöðum ...  alltaf nauðsynlegt að koma við á Þingvöllum þó svo að það hafi verið agalega kalt um nóttina... og bísna erfitt að kíkja undan sænginni kl 6 um morguninn til að horfa á íslenska landsliðið spila við Dani... 

Ágætt var í Þolló þó svo að mér finnist það nú vera hálfgerður svefnbær.. enda komum við þarna aðeins til að sofa hehehe....  fórum smá rúnt um kvöldið og ótrúlegt að sjá hvað er verið að byggja mikið á svæðinu...mundi þá allt í einu að Sigrún Grétars vinkona var að byggja ehversstaðar á svæðinu...  var keyrt ofur hægt til að athuga hvort að hún myndi standa ehversstaðar fyrir utan og bíða mín... en ehverja hluta vegna leit ég inn í eitt húsið þar sem mér fannst ég hafa séð hana í glugganum... eftir að rúnta nokkrum sinnum framhjá húsinu... var ég næstum búin að keyra yfir hund sem að var fyrir framan húsið... leit á eigandann og strák sem að stóð við hliðina á honum.. og vitið menn þar var Sigrún í strákagervi...  hefði verið illa svikin ef að þetta hefði ekki verið sonur hennar... var alveg eins og hún...  kíkti aðeins ínn i pleisið... stórglæsilegt hús...  og var agalega gaman að hitta aðeins á hana...

En s.s. komin í veruleikann again...fríið búið í bili og vinna á mánudag

þangað til næst...


Posted at 12:19 am by petit
Make a comment

Friday, August 01, 2008
Í dag í dag í dag..

Gleðilega þjóðhátíð !!!

já loksins loksins er hún komin þjóðhátíðin... reyndar ekki búið að setja hana en það er bara formsatriði... nokkrir tímar í djamm og sjúklegheit...  ooohhh verður vonandi æði...

Frændsystkinapartyið var í gær og skemmti ég mér konunglega... þó svo að mitt stopp hafi verið stutt...  þurfti í vinnu í morgun þannig ég fór snemma heim... kannski maður sé bara farin að fullorðnast ehvað hehehe.... 

En skemmtið ykkur vel sama hvar þið eruð á landinu... en vitið það að við munum skemmta okkur best hér í Eyjum... ;)

Gangið hægt um tjaldanna op....

þangað til næst...

 

 


Posted at 11:52 am by petit
Make a comment

Wednesday, July 30, 2008
Ekki á morgun heldur hinn.....

Jæja já... hátíðin alveg að renna í hlað...  fyrstu gestirnir mættir á svæðið... og fleiri koma í dag...  skipið á að vera alveg sneisafullt af mannfólki í allan dag.. morgun og föstudag... lítur út fyrir góða hátíð... og veðrið ætlar að verða ágætt... reyndar aðeins of gott í dag 20 stiga hiti og sól... en maður situr á rassgatinu í vinnunni og kemst ekki út...  agalega gaman að sitja og horfa á góða veðrið í gegnum rúðuna... og ekki ein sála sem að kemur hérna inn ..enda allir að sóla sig... nema við í vinnunni :(  híhí...  nei.. þá hækkar maður bara í þjóðhátíðarlögunum og kemur sér í stemmara fyrir næstu helgi...    í brekkunni er sungið dátt....................  úje.....

Frændsystkina-partyið er annað kvöld... svart og hvítt þema...  og ég sem átti hugmyndina steingleymdi því... dís...  en ég held ég eigi ehvað hvítt í skápunum... kannski finn ég ehvað svart líka ef ég leita vel og lengi...  hehe... en hlakka mikið til... skemmtilegt fólk sem verður þarna samankomið.. verst að eiga að fara í vinnu á föstudagsmorgun...  en maður verður bara að vera responsible og djamma í hófi ... hehehe... verð ég það ehverntíma... hmmmmm spurning.....

En ekki á morgun heldur HINN  er þjóðhátíð... bara svona ef það hefður farið framhjá ykkur...   :)

þangað til næst...........


Posted at 10:45 am by petit
Make a comment

Sunday, July 27, 2008
4 dagar og styttist...

Jæja nú er þjóðhátíðarvikan að renna upp...  finnst það ótrúlegt hvert fór eiginlega sumarið... búið að vera svo margt að ske að það hreinlega hljóp hundrað metrana á innan við 10 sek...   aðeins of hratt fyrir mig... en ég er ekki að kvarta því nú eru aðeins 4 dagar í þjóðhátíðina....    jjjjjjjjjjjeeeeeeeeejjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjjj

Nú er ekki farið í bílinn öðru vísi en að taka rúnt í dalinn....  auk þess er búið að fjölfalda þjóðhátíðardiskinn þannig að einn er hérna heima, annar í bílnum og sá þriðji í vinnunni..  svo engin hætta á að maður sakni þjóðhátíðarlaganna...  eða muni ekki hvernig þau hljóma... hehe.....

Er einnig búin að  horfa á þetta myndband nokkrum sinnum á dag.. og O MY GOD hvað þetta fangar stemminguna... ég hreinlega græt yfir því af tilhlökkun.... já ég tárast ekki ... græt....  en það eru gleði og tilhlökkunartár... besta gerð... :D 

AÐEINS FJÓRIR DAGAR !!!!! 

þangað til næst...


Posted at 01:08 pm by petit
Comments (2)

Thursday, July 24, 2008
Styttist óðum..........

Dís... nú er aðeins vika í hátíð allra hátíða...   Þjóðhátíðina...  GET EKKI BEÐIÐ!!  elska þessa helgi...  svo margir í bænum allir brosandi og glaðir..  svo ekki sé talað um að flest allt fólkið mitt er í bænum...  eru þó nokkrir sem að ætla að koma núna svo það verður bara gaman.. verst að tjaldið okkar er eiginlega orðið of lítið.. held að það sé nauðsyn að fara að fjárfesta í stærra tjaldi.. erum um tuttugu í tjaldinu lágmark...  en það er líka bara gaman.. verður aldrei tómt tjald hehehe...  :) 

Langar svoooo í ehvað due fyrir sunnudagskvöldið.. veit ekki alveg hvað það á að vera en ...  verð að hugsa það aðeins...

Svo er auðvitað frændsystkina-party á fimmtudagskvöldinu fyrir þjóðhátíð...  hlakka geðveikt til þá... erum svo agalega skemmtileg frændsystkinin þó ég segi sjálf frá hehehehehe...   :)    verður mikið djúsað og hlegið... verst að ég á að mæta í vinnu á föstudagsmorgun...   úfffff  en aðeins í 2 og 1/2 tíma ... ég ætti að lifa það af.... 

En leikur í kvöld...  við Þórsara frá Ak...  ætla rétt að vona að við tökum þá... hmmmmm  Rúnar og Benni hehehehehe...  

ÁFRAM ÍBV... !!

þangað til næst


Posted at 12:31 pm by petit
Comments (3)

Monday, July 07, 2008
Goslokin

Snilldar goslokahelgi að baki...   Var nú ekkert sérlega spennt fyrir en það rættist heldur betur úr...   hitti svoooo mikið að fólki sem ég hef ekki séð í langan langan tíma... og tók yfir 200 myndir..  ætla að reyna að setja þær inn hér við tækifæri....   Ekki spillti það gleði helgarinnar að ÍBV vann leikinn á móti KS/Leiftri eða KSL eins og það ætti frekar að kalla þá....   þó svo að leikur ÍBV hafi nú ekki verið upp á marga fiska og fannst mér þetta leiðinlegast leikurinn sem ég hef séð með þeim í allt sumar...  vonandi er eina leiðinn uppá við....  megum ekki við því að fara að misstíga okkur...  Aðal rimman er svo á fimmtudaginn þegar við mætum Selfoss...  eins gott að þeir verði vel gíraðir upp fyrir þann leik...   og ekkert annað en sigur kemur til greina.

Það er farið að styttast allverulega í Þjóðhátíðina aðeins 24 dagar þangað til...  og spennan magnast með hverjum klukkutíma....  nýja þjóðhátíðarlagið er búið að hljóma í spilaranum alla helgina og verður það betra með hverri hlustun.. ekki það að mér hafi líkað ehvað illa við það ...  

Samt er fullt að gerast áður en að Þjóðarinn gengur í garð...  Brúðkaup næstu helgi.. og svo ættarmót aldarinnar helgina þar á eftir...  undirbúningur á fullu þessa dagana og nóg að gera í planleggingum, söngbókagerð...  og það er svo mikil aðsókn að við þurfum að enduskoða plön föstudagskvöldsins þar sem að golfskálinn er sennilega bara orðin allt of lítill.... 

en nóg af blaðri í bili

þangað til næst. .


Posted at 06:14 pm by petit
Comments (2)

Next Page